fös 14. maí 2021 21:51
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Átta marka jafntefli upp á Skaga
Marinó Hilmar Ásgeirsson skoraði þrennu fyrir Kára
Marinó Hilmar Ásgeirsson skoraði þrennu fyrir Kára
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári 4 - 4 KV
1-0 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('14 )
2-0 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('35 )
2-1 Kristján Páll Jónsson ('41 )
2-2 Askur Jóhannsson ('44 )
3-2 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('71 )
3-3 Ingólfur Sigurðsson ('79, víti )
4-3 Martin Montipo ('82, víti )
4-4 Þorsteinn Örn Bernharðsson ('90 )

Þorsteinn Örn Bernharðsson bjargaði stigi fyrir KV er liðið gerði 4-4 jafntefli við Kára í 2. deildinni í kvöld en spilað var í Akraneshöllinni.

Marinó Hilmar Ásgeirsson gerði fyrstu tvö mörkin fyrir Kára áður en Kristján Páll Jónsson og Askur Jóhannsson jöfnuðu leikinn undir lok fyrri hálfleiks.

Marinó fullkomnaði þrennu sína á 71. mínútu en aftur náði KV að jafna er Ingólfur Sigurðsson skoraði af vítapukntinum átta mínútum síðar. Kári fékk víti á 82. mínútu og nýtti Martin Montipo spyrnuna og útlit fyrir að Kári myndi taka öll stigin úr viðureigninni en Þorsteinn Örn hélt þó ekki.

Hann skoraði á 94. mínútu í uppbótartíma og náði í stig fyrir gestina sem eru nú með fjögur stig úr fyrstu tveimur leikjunum en þetta var fyrsta stigið hjá Kára á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner