Fotbolti.net
14.05.22 - 08:15
Victor Pálsson

Arsenal á erfiðasta verkefnið framundan

Arsenal á erfiðasta verkefnið framundan
Canon

Mynd: EPA

Arsenal á erfiðara verkefni framundan en keppinautar liðsins um Meistaradeildarsæti, Chelsea og Tottenham.

Arsenal missteig sig ansi illa í gær gegn einmitt Tottenham í Meistaradeildarbaráttunni og tapaði 3-0 á útivelli.

Tottenham er nú aðeins einu stigi á eftir Arsenal sem er í fjórða sæti deildarinnar og þá fimm stigum á eftir Chelsea.

Chelsea getur tryggt sér Meistaradeildarsæti með sigri á Leicester í næsta deildarleik sínum sem fer fram þann 19. maí.

Chelsea mætir svo Watford á heimavelli í kjölfarið og er óhætt að búast við sigri þar en Watford er fallið.

Arsenal á mun erfiðara verkefni næst gegn Newcastle á útivelli en Newcastle hefur spilað virkilega vel undanfarnar vikur.

Svo tekur við verkefni gegn Everton en möguleiki er á að sá leikur verði mikilvægur fyrir þá bláklæddu í fallbaráttunni.

Tottenham spilar einnig við fallbaráttulið í Burnley á sunnudaginn á heimavelli og heimsækir svo fallið lið Norwich í lokaumferðinni.

Lokaleikir Chelsea:
Chelsea - Leicester City
Chelsea - Watford

Lokaleikir Arsenal:
Newcastle - Arsenal
Arsenal - Everton

Lokaleikir Tottenham:
Tottenham - Burnley
Norwich - Tottenham

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.