Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. júní 2018 09:14
Arnar Daði Arnarsson
Gelendzhik
Landsliðsmaður skartar húðflúri af sjálfum sér
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslensku landsliðsmennirnir í knattspyrnu eru margir hverjir vel húðflúraðir.

Keflvíkingurinn, Arnór Ingvi Traustason er þar engin undantekning. Á vinstri upphandleggnum má sjá athyglisverða fjölskyldu mynd þar sem húðflúrað hefur verið mynd af honum og foreldrum hans.

Þar er hann ungur á árum í hinum fínustu jakkafötum og foreldrar hans í bakgrunni alsæl með drenginn.

Hliðin á myndinni hefur Arnór Ingvi síðan bætt við skammstöfun systkina sinna.

Hafliði Breiðfjörð, ljósmyndari Fótbolta.net tók mynd af húðflúrinu fyrir æfingu íslenska landsliðsins í Gelendzhik í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner