Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fös 14. júní 2019 22:51
Sverrir Örn Einarsson
Halldór Smári: Þetta var ljótt
Halldór Smári Sigurðsson
Halldór Smári Sigurðsson
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Halldór Smári Sigurðsson lék sinn 301 leik fyrir Víking þegar liðið lagði HK að velli í veðurblíðunni í Fossvogi í kvöld. Halldór hefur verið fastamaður í liði Víkinga undanfarin ár og er orðin einn af leikjahæstu leikmönnum félagsins þrátt fyrir að vera aðeins 31 árs gamall.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  1 HK

„Ég get eiginlega ekki lýst því þetta er bara svo mikill léttir og góð tilfinning. Þetta var ljótt en þetta kom og það er bara fyrir öllu,“
sagði Halldór um tilfinninguna að landa fyrsta sigri sumarsins í vígsluleik í Víkinni.

Eftir fínan fyrri hálfleik áttu Víkingar í basli með að halda gestunum frá sér í þeim síðari. Hvernig mat Halldór leikin? Voru Víkingar of passívir?

„Já ég myndi segja það en ég held að það hafi bara gerst ósjálfrátt. Lið eins við sem hefur ekkert gengið alltof vel við vorum í þessari stöðu sem við vorum í fyrir leik og föllum ósjálfrátt til baka en á móti kemur að við vorum þéttir og náðum að sigla þessu í höfn. “

Sagði Halldór Smári Sigurðsson en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner