Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 14. júní 2019 15:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Versta mögulega vegferð sem KR gat lagt í"
Björgvin Stefánsson.
Björgvin Stefánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björgvin var dæmdur í fimm leikja bann.
Björgvin var dæmdur í fimm leikja bann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Pedro Stefánsson, tónlistarmaður, er ósáttur við það hvernig KR-ingar tóku á máli Björgvins Stefánssonar.

Björgvin var dæmdur í fimm leikja bann fyrir ummæli sín í beinni netútsendingu á Haukar TV þar sem hann lýsti leik Hauka og Þróttar í Inkasso-deild karla. Björgvin var með kynþáttafordóma í garð Archie Nkumu, leikmanns Þróttar.

KR og Björgvin Stefánsson áfrýjuðu leikbanninu sem Björgvin var dæmdur í af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ, en áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti svo bannið.

Logi Pedro skrifar í dag pistil á vefsíðu Útvarp 101 þar sem hann gagnrýnir það hvernig KR tók á þessu máli.

Pistill Loga
„Þetta mál allt saman er merkilegt og hægt er að rýna mikið í það, enda vakti þetta upp mikil viðbrögð. Það sem kemur undirrituðum þó helst á óvart í þessu máli eru viðbrögð Knattspyrnufélags Reykjavíkur, sem og stuðningsmanna þeirra," skrifar Logi.

„KR fór fram á það að aganefnd KSÍ vísaði málinu frá og að leikmanninum yrði ekki gerð refsing. Eins áfrýjaði KR dómnum sem féll, en áfrýjunardómstóll KSÍ staðfesti hins vegar dóminn."

„Ummælin eru eins og þau eru og við erum að berja dauðan hest ef við ræðum þau frekar. Óafsakanlegt kynþáttaníð sett fram í misheppnaðri kímni. Eins er það skýrt samkvæmt reglum KSÍ að við broti þar sem kynþáttaníð kemur fram er refsing, að lágmarki, 5 leikja bann."

„En einhverja hluta vegna reyna KR-ingar hins vegar að komast hjá því að taka út refsingu, og Rúnar Kristinsson, þjálfari félagsins, talar alvarleika brotsins og hugsanlegar afleiðingar niður í viðtali við fjölmiðla nokkrum dögum eftir atvikið. Hann talar um fordæmi sem aganefnd KSÍ hefur sett. Eins tekur hann þá ákvörðun að spila leikmanninn í fyrsta leik eftir atvikið. Enginn skal efast um það að Rúnar Kristinsson er fínn náungi, fyrrum landsliðshetja og leiðtogi. Hann baðst afsökunar á ummælunum fyrir hönd félagsins, rétt eins og KR, en eftirfylgnin var þó önnur. Og þvílíkt sem þjálfara KR, sem og félaginu, fatast flugið í þessu máli."

„Umræðan um það hvernig KSÍ tæki á atvikinu fór einhverra hluta vegna að snúast um fordæmi sem aganefnd KSÍ hafði sett í fyrri dómum. Eins og það væri sjálfsagt að sleppa við refsingu á svona skýru broti, með tilliti til fyrri dóma. En verum skýr hérna: Allt tal um fordæmi aganefndar er þvættingur. Svona umbúðalaust kynþáttaníð hefur ekki komið fram síðustu ár í íslenskum fótbolta, og hvað þá dokúmenterað svona vel - orð fyrir orð á upptöku."

„Það sem hefði verið fínt í þessu blessaða máli, sem hefði mátt afgreiða á einni viku, væri að taka ábyrgð á þessum ummælum. En að tala brotið niður, fara fram á enga refsingu og áfrýja svo dómnum er versta mögulega vegferð sem KR gat lagt í."

„Eins vekur það furðu hversu litla gagnrýni stuðningsmenn KR hafa sett fram á sitt ástkæra félag. Hvernig getur það verið að allur Vesturbærinn sofi og segi ekki neitt þegar að stórveldið þeirra stendur ekki í lappirnar gegn hatursorðræðu?"

Björgvin spilar næsta leik í Pepsi Max 21. júlí
Ofan á þetta fimm leikja bann verður Björgvin í banni vegna uppsafnaðra áminninga í Mjólkurbikarnum þegar KR mætir Njarðvík þann 27. júní í 8-liða úrslitum.

Næsti leikur í Pepsi Max-deildinni sem Björgvin verður löglegur í verður þann 21. júlí gegn Stjörnunni.

Næsti leikur Björgvins fyrir KR gæti þó verið Evrópuleikur í júlí, sem kemur á undan leiknum gegn Stjörnunni.

Leikirnir sem Björgvin missir af
15. júní ÍA - KR
19. júní KR - Valur
23. júní FH - KR
27. júní KR - Njarðvík (bann vegna uppsafnaðra spjalda í bikar)
1. júlí KR - Breiðablik
6. júlí ÍBV - KR
Athugasemdir
banner
banner
banner