Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 14. júní 2021 18:40
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo vildi ekki tjá sig um framtíðina
Cristiano Ronaldo gæti verið á förum í sumar
Cristiano Ronaldo gæti verið á förum í sumar
Mynd: EPA
Portúalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo vildi lítið tjá sig um framtíðina á blaðamannafundi fyrir landsleik Portúgals gegn Ungverjalandi en gaf þó í skyn að hún er óljós.

Ronaldo hefur spilað síðustu þrjú tímabil með Juventus eða frá því hann kom frá Real Madrid.

Hann er samningsbundinn til 2022 en ítalskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hann gæti verið á förum frá félaginu í sumar.

Ronaldo, sem var markahæsti leikmaður ítölsku deildarinnar í ár, vildi ekki tjá sig mikið um framtíðina.

„Hvað sem gerist í framtíðinni þá er það mér og öllum fyrir bestu," sagði Ronaldo.

Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Real Madrid og Manchester United en Paris Saint-Germain er einnig sagt hafa áhuga á að fá hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner