Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. júlí 2018 13:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cuadrado lætur kjósa um treyjunúmerið sitt
Juan Cuadrado.
Juan Cuadrado.
Mynd: Getty Images
Kólumbíumaðurinn Juan Cuadrado þarf nýtt treyjunúmer fyrir komandi tímabil.

Cuadrado spilaði í treyju númer sjö hjá Juventus á síðasta tímabili en Cristiano Ronaldo, einn besti fótboltamaður sögunnar, fær það númer hjá félaginu fyrir næsta tímabili. Ronaldo var að ganga í raðir Juventus frá Real Madrid.

Ronaldo var aldrei að fara í eitthvað annað númer enda er hann þekktur undir viðurnefninu "CR7".

Margir hefðu kannski tekið því illa að þurfa að gefa númerið sitt eftir en Cuadrado ætlar ekki að leggjast í fýlu. „Það er betra að gefa en þiggja," skrifaði Cuadrado á Instagram.

Cuadrado þarf að fara í nýtt númer og hann ætlar ekki að velja sjálfur, hann leyfir stuðningsmönnum að velja.

Cuadrado gaf upp fjóra kosti: 16, 21, 49 og 10. Tían er samt í eigu Paulo Dybala og ólíklegt að hann gefi hana upp á bátinn, en Cuadrado hafði hana með í valinu til þess að grínast aðeins í félaga sínum.

Eins og staðan er núna er Cuadrado á leiðinni í treyju númer 49 en það treyjunúmer er að vinna kosninguna. Meira en 130 þúsund manns hafa tekið þátt í kosningunni.

Hér að neðan geturðu tekið þátt í kosningunni.



Athugasemdir
banner
banner
banner