Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. júlí 2018 22:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Drogba: Mbappe getur unnið gullboltann einn daginn
Mynd: Getty Images
Didier Drogba hefur mikla trú á Kylian Mbappe sem hefur verið að gera góða hluti á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.

„Hann er strákur sem ég þekki og ég þekki einnig fólkið sem hefur hjálpað honum að komast á þann stað sem hann er í dag, ég hef einnig sjálfur fylgst mikið með honum síðustu ár.

„Ég samgleðst honum og ef hann heldur áfram á þessari braut getur hann farið alla leið og unnið gullboltann einn daginn," sagði Drogba.

Mbappe og félagar hans í franska landsliðinu leika til úrslita á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi á morgun en Mbappe hefur eins og fyrr segir verið að gera góða hluti þar en hann er búinn að skora þrjú mörk í sex leikjum.
Athugasemdir
banner
banner