banner
   lau 14. júlí 2018 21:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Hazard: Kannski er kominn tími til að prófa eitthvað nýtt
Verður Hazard áfram hjá Chelsea?
Verður Hazard áfram hjá Chelsea?
Mynd: Getty Images
Eden Hazard og félagar hans í Belgíu tryggðu sér bronsið á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í dag þegar þeir sigruðu England nokkuð örugglega 2-0.

Mikið hefur verið rætt um framtíð Hazard hjá Chelsea en hann hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid, sérstaklega eftir að Cristano Ronaldo fór til Juventus.

Hazard sagði í viðtali eftir leikinn í dag að nú væri kannski kominn tími til að prófa eitthvað nýtt.

„Eftir sex frábær ára hjá Chelsea þá er kannski kominn tími til að prófa eitthvað nýtt," sagði Hazard.

„Eftir þetta Heimsmeistaramót þá mun ég taka ákvörðun um það hvort ég vilji vera áfram eða að ég vilji fara, Chelsea mun alltaf eiga lokaorðið hvort þeir séu tilbúnir til að leyfa mér að fara eða ekki."
Athugasemdir
banner
banner