lau 14. júlí 2018 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hazard sagðist vera að undirbúa sig fyrir Real"
Er Hazard á förum frá Chelsea.
Er Hazard á förum frá Chelsea.
Mynd: Getty Images
Brian Laudrup, fyrrum leikmanni Chelsea, er Eden Hazard að reyna að komast til Real Madrid. Laudrup segir að Hazard hafi sagt við sig að hann sé að fara til Madrídarstórveldisins.

Real Madrid seldi hinn 33 ára Cristiano Ronaldo til Juventus í vikunni og er félagið væntanlega að fá leikmann í hans stað.

Real sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem sagt var frá því að það væri ekki planið hjá Real Madrid að bjóða í Neymar.

Neymar hafði verið sterklega orðaður við Real Madrid en það bendir ekki til þess að hann sé á leið til Spánar aftur.

Hazard gæti hins vegar verið á leið til Spánar ef marka má orð Laudrup. „Ég talaði við Eden Hazard fyrir nokkrum dögum, hann er að undirbúa sig að fara til Real Madrid, það væri gott fyrir hann og Real," sagði Laudrup við Sportske Novosti.

Maurizio Sarri tók við Chelsea í morgun og spurning er hvernig það hefur áhrif á Hazard.
Athugasemdir
banner
banner
banner