Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 14. júlí 2018 22:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Kaka: Allt virðist vera svo auðvelt fyrir Modric
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Luka Modric og félagar hans í króatíska landsliðinu munu leika til úrslita á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi á morgun þar sem þeir mæta Frakklandi.

Modric hefur verið frábær á HM og Brasilíumaðurinn Kaka hrósaði króatanum snjalla í viðtali á dögunum.

„Það virðist allt vera svo auðvelt fyrir Modric, en trúið mér, þetta er ekki eins auðvelt og það virðist vera þegar fólk horfir á Modric spila. Að spila á Heimsmeistaramóti er ekki auðvelt, en hann spilar eins og honum finnist ekkert auðveldara."

„Hann er frábær leikmaður sem hefur afrekað margt eins og unnið Meistaradeildina fjórum sinnum og er nú kominn í úrslitaleik á Heimsmeistaramóti og þar að auki er hann fyrirliði Króatíu."

„Modric á þetta svo mikið skilið því hann er frábær náungi, alltaf mjög hógvær, svo til hamingju með þetta Modric," voru lokaorð Kaka um Luka Modric í þessu viðtali við Omnisport.
Athugasemdir
banner
banner