Við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Ég er búinn að fylgjast vel með Leiknismönnum og þeir hafa unnið síðustu tvo leiki.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 0 - 1 Þór
Þórsarar voru heilt yfir betri í leiknum en skoruðu ekki fyrr en á 84. mínútu.
Auðvitað var maður smeikur að markið myndi ekki koma. Þetta var svolítið ólíkt senterunum hjá okkur að klára ekki færin.
Aðspurður útí vítaspyrnu sem hann vildi fá í fyrri hálfleik svaraði Lárus:
Nei ég ætla ekkert að tjá mig um dómara hvort sem þeir eru góðir eða ekki.
Aðspurður útí styrkingu í glugganum sagði Lárus:
Nei. Þetta er hópurinn sem við klárum þetta með. Nú erum við komnir í 23 stig og næsti leikur er Haukar heima.
Athugasemdir