Elvar Geir og Tómas Þór voru í góðum gír í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Komin er inn heildarupptaka af þættinum.
Heildarupptökur af þættinum koma á Vísi
Heildarupptökur af þættinum koma á Vísi
Hitað var upp fyrir úrslitaleik Frakklands og Króatíu. Davíð Snorri Jónasson, HM sérfræðingur þáttarins, er staddur í Frakklandi og sagði frá stemningunni í landinu og sinni tilfinningu fyrir leiknum.
Þá var rætt um enska landsliðið og grasrótarstarfið í landinu. Árni Ingi Pjetursson vinnur fyrir Nike og hefur unnið náið með enska knattspyrnusambandinu.
Talað var um hversu lítið flest liðin í Pepsi-deildinni skora af mörkum. Er lágt skemmtanagildi í deildinni áhyggjuefni.
Þetta og ýmislegt fleira í þætti dagsins!
Athugasemdir