Fotbolti.net
14.07.20 - 14:19
Magnús Már Einarsson

Leeds færist nær úrvalsdeildinni - Bielsa rólegur

Marcelo Bielsa stjóri Leeds.

Marcelo Bielsa stjóri Leeds.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United þarf fjögur stig í síðustu þremur umferðunum í Championship deildinni til að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á ný eftir sextán ára fjarveru.
Leeds fær Barnsley í heimsókn á fimmtudaginn og liðið gæti nánast tryggt sætið í úrvalsdeildinni með sigri þar.

Ef Brentford misstígur sig gegn Preston á morgun þá mun Leeds tryggja sig upp með sigri á fimmtudaginn.

„Við reynum að vinna alla leiki. Við erum ekki að hugsa um afleiðingarnar ef við vinnum," sagði Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, fyrir leikinn.

Leeds vann dramatískan útisigur gegn Swansea um helgina en þar skoraði Pablo Hernandez sigurmarkið í viðbótartíma.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.