Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 14. júlí 2020 17:15
Magnús Már Einarsson
Myndband: Dómarinn stakk vörnina af
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Neuchatel Xamax tapaði 3-0 gegn Thun í svissnesku úrvalsdeildinni í fyrradag. Xamax hefur átt erfitt tímabil og situr á botninum í Sviss.

Í leiknum á sunnudag gerðist áhugavert atvik þegar dómarinn Urs Schnyder stakk varnarlínu liðsins gjörsamlega af.

Gregory Karlen, framherji Thun, slapp í gegn og Urs dómari kom á harðaspretti á eftir honum eins og sjá má neðst í fréttinni.

Urs byrjaði langt eftir varnarlínu Xamax en hann stakk alla leikmenn liðsins af!

Urs dómari er fjölhæfur en hann er leikfimikennari í Sviss og söngvari í rokkbandinu Preamp Disaster.


Athugasemdir
banner
banner