Á þriðjudagskvöld var leikið í forkeppni Meistaradeildarinnar en þau lið sem komust áfram úr sínum rimmum eru núna einu einvígi frá sæti í riðlakeppninni.
Þar á meðal eru Noregsmeistarar Rosenborg sem fóru illa með slóvenska liðið Maribor. Íslandsmeistarar Vals féllu úr leik gegn Maribor í umferðinni á undan.
Porto, Skotlandsmeistarar Celtic og Danmerkurmeistarar FCK eru meðal liða sem féllu úr leik.

Qarabag 0 - 2 APOEL (Samtals: 2-3)
Rosenborg 3 - 1 Maribor (Samtals: 6-2)
Dinamo Kiev 3 - 3 Club Brugge (Samtals: 3-4)
Kaupmannahöfn 1 - 1 Rauða Stjarnan (Samtals: 2-2 - Rauða Stjarnan vann í vítaspyrnukeppni)
Ferencvaros 0 - 4 Dinamo Zagreb (Samtals: 1-5)
Ajax 3 - 2 PAOK Thessaloniki (Samtals: 5-4)
Sverrir Ingi Ingason var ónotaður varamaður hjá PAOK.
LASK 3 - 1 Basel (Samtals: 5-2)
Porto 2 - 3 Krasnodar (Samtals: 3-3)
Krasnodar áfram á útivallarmörkum - Jón Guðni Fjóluson kom inn sem varamaður hjá Krasnodar á 65. mínútu.
Olympiacos 2 - 0 Istanbul Basaksehir (Samtals: 3-0)
Celtic 3 - 4 CFR Cluj (Samtals: 4-5)
Athugasemdir