Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 14. ágúst 2019 08:30
Oddur Stefánsson
Heimild: Goal 
Oblak: Joao Felix verður stórkostlegur leikmaður
Mynd: Getty Images
Jan Oblak, markmaður Atletico Madrid, virðist vera ánægður með kaupin á Portúgalanum unga, Joao Felix, sem kom á himinháa upphæð fyrr í sumar frá Benfica.

Felix hefur heillað marga á undirbúningstímabilinu og skoraði til að mynda tvö frábær mörk gegn Cristiano Ronaldo og félögum í Juventus um daginn.

„Við erum á ennþá á undirbúnigstímabilinu en hann hefur sýnt sína hæfileika og þeir geta gert hann að stórkostlegum leikmanni," sagði Oblak í viðtali við La Liga.

„Ég er viss um að þetta sé rétti staðurinn fyrir hann og hann getur lært mikið undir stjórn Diego Simeone."

Felix kom til Madrid fyrir 117 milljónir punda og er hugsaður sem langtíma lausn til að fylla í skarð Antoine Griezmann sem gekk í raðir Barcelona í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner