Fotbolti.net
14.09.19 - 19:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Guðmundur Andri: Líður eins og ég sé að dreyma þetta

Auglýsing
Guðmundur Andri: Líður eins og ég sé að dreyma þetta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
<i>„Þetta er draumur, ég veit ekki alveg hvað ég á að segja,"</i> sagði Guðmundur Andri Tryggvason, leikmaður Víkinga, eftir sigurinn á FH í bikarúrslitunum í dag.
Guðmundur er í láni hjá Víkingum frá Start í Noregi.

„Ég kem heim á láni, kem í eitthvað geggjað lið og við vinnum bikarinn. Mér líður eins og ég sé að dreyma þetta."

„Mér fannst við vera mikið betri ef ég á að segja eins og er. Í fyrri hálfleik vorum við með yfirburði og vorum óheppnir að skora ekki. Við skoruðum í seinni hálfleik og unnum leikinn verðskuldað."

Pétur Viðarsson, leikmaður FH, fékk rauða spjaldið þegar hann steig ofan á Guðmund.

„Hann er búinn að vinna boltann, ég kem fyrir aftan hann og fæ fótinn hans í bringuna á mér. Ég veit það ekki. Hann dæmir rautt og þannig verður þetta bara að vera."

Viðtalið er hér að ofan í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.