Fotbolti.net
14.09.19 - 18:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Míló: Var planið þegar við hófum undirbúningstímabilið

Auglýsing
Míló: Var planið þegar við hófum undirbúningstímabilið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slobodan Milisic, þjálfari KF, var sáttur eftir 4-1 sigur sinna drengja gegn Reyni Sandgerði í 3. deildinni í dag. KF komst upp í 2. deild með sigrinum.
„Ég er mjög stoltur. Þetta var planið strax í vetur, þegar við byrjuðum undirbúningstímabilið," sagði Míló eftir leikinn.

„Þetta var alveg eins og úrslitaleikur, við undirbjuggum okkur til að vinna leikinn. Við ætluðum að keyra á þá frá fyrstu mínútu, gefa allt sem við getum í þennan leik. Það tókst í dag."

Hann segist vilja vera áfram með liðið, en það eigi eftir að koma betur í ljós.

Viðtalið er hér að ofan í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.