Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 14. október 2018 11:00
Arnar Helgi Magnússon
Ancelotti fékk pizzu með andlitinu sínu á
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti hefur nýtt landsleikjahléið í að skoða og heimsækja staði sem hann hefur ekki komið á áður í Napoli.

Lið Napoli hefur farið vel af stað í ítölsku deildinni en það situr í 2. sæti deildarinnar þegar átta leikir hafa verið spilaðir.

Ancelotti heimsótti á ferðalagi sínu um Napoli lítinn pizzastað í úthverfi borgarinnar en hann er sagður mikill áhugamaður um góðar pítsur.

Þessi pítsa var sennilega ekki eins og flestar þær pítsur sem Ancelotti hefur fengið en það var búið að setja andlit ítalska þjálfarans á pítsuna.

Ancelotti virtist ánægður með þetta og lét mynda sig með pítsunni frægu.

Allan, leikmaður Napoli var með Ancelotti í för og fékk einnig andlit sitt á eina pítsuna.

Myndir af þessari skemmtilegu uppákomu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner