Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. október 2018 15:59
Arnar Helgi Magnússon
Bale sendur heim til Spánar
Mynd: Getty Images
Gareth Bale verður ekki í leikmannahópi Wales sem mætir Írlandi í Dublin annað kvöld. Um er að ræða leik í Þjóðadeildinni.

Bale tók ekki þátt í æfingaleik gegn Spáni á fimmtudaginn en þar töpuð Walesverjar illa, 4-1.

Aron Ramsey, samlandi Bale segir að Wales muni sakna hans annað kvöld.

„ Þetta er mikill missir fyrir okkur. Það eru allir meðvitaðir um það hversu mikilvægur Bale er. Hann hefur gert svo mörg mörk fyrir okkur. Við verðum að líta á björtu hliðarnar og við erum spenntir fyrir verkefninu," sagði Ramsey.

Bale er ekki eini leikmaður Wales sem missir af leiknum annað kvöld en ungstirnið frá Chelsea, Ethan Ampadu verður einnig fjarverandi vegna meiðsla. Kioren Freeman leikmaður Sheffield United hefur verið kallaður inn í hópinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner