Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. október 2018 12:38
Hafliði Breiðfjörð
Hamren: Kolbeinn svolítið aumur eftir leikinn
Icelandair
Erik Hamren ræðir við fréttamenn í dag.
Erik Hamren ræðir við fréttamenn í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HamrenErik Hamren landsliðsþjálfari Íslands var spurður út í stöðuna á Kolbeini Sigþórssyni á fréttamannafundi landsliðsins í morgun.

Kolbeinn hefur ekki spilað keppnisleik með félagsliði í tvö og hálft ár og aðeins spilað nokkrar mínútur með landsliðinu gegn Belgíu í september og svo hálftíma í vináttuleiknum við Frakka á fimmtudaginn.

„Hann hefur verið að æfa með liðinu en var svolítið aumur í gær eftir leikinn gegn Frökkum," sagði Hamren við fréttamenn í dag.

„Hann tekur þátt í æfingunni í dag sem er gott. Auðvitað er þetta annað með æfingar og leiki og sér í lagi eftir leik gegn liði eins og Frakklandi, þetta var erfiður leikur líkamlega og eins nálægt alvöru leik og hægt var að komast."
Athugasemdir
banner
banner
banner