Granit Xhaka leikmaður Arsenal og fyrirliði svissneska landsliðsins var mættur með sínum mönnum á Laugardalsvöll nú undir kvöld í undirbúningi fyrir leikinn gegn Íslandi hér annað kvöld. Athygli vakti að Xhaka mætti með gimsteina í eyrunum, glæsilega eyrnalokka sem glitruðu í allar áttir. Myndir af þessu má sjá að neðan en lokkana má hann svo ekki bera þegar leikurinn fer fram af öryggisástæðum.
Athugasemdir