Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 14. október 2018 10:00
Arnar Helgi Magnússon
Rooney lagði upp sigumark DC United - Fyrsta sinn í umspilssæti
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney hefur verið sjóðandi heitur með DC United undanfarna daga og vikur. Liðið hefur verið á hraðri uppleið og í nótt komst liðið í fyrsta skipti í umspilssæti í MLS deildinni. Sex efstu liðin í deildinni fara í umspil um MLS-titlinn.

Það var ekki fyrr en á 86. mínútu leiksins að sigurmark DC United kom. Rooney tók þá aukaspyrnu sem rataði beint á kollinn á Russell Canouse sem skallaði boltann í netið.

Rooney fékk nokkur tækifæri í leiknum til þess að skora en hann hafði orð á því eftir leik að hann hefði getað spilað í allt kvöld án þess að skora. Ekki hans dagur.

Þrír leikir eru eftir af deildarkeppninni áður en að umspilið hefst. DC eru með stigi meira en Montreal Impact sem situr í 7. sæti deildarinnar og eiga einnig leik til góða.



Athugasemdir
banner
banner