Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 14. október 2018 16:30
Arnar Helgi Magnússon
Rúrik: Geri ekki kröfu á það hvar ég spila á meðan ég spila
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur lítið gengið hjá Rúriki Gíslasyni og liðsfélögum hans í Sandhausen í 2. deild í Þýskalandi. Þjálfari liðsins var rekinn fyrir stuttu og liðið situr í næst neðsta sæti deildarinnar.

„Þjálfarinn var rekinn núna um helgina. Þetta er upp og niður í þessum bolta."

Rúrik hefur verið að spila sem hægri vængbakvörður hjá liðinu og kann ágætlega við þá stöðu.

„Það er staða sem að mér líst ágætlega vel á. Þetta er ekkert í fyrsta skipti sem að leikmaður færist aftar á völlinn eftir því sem hann eldist. Það er bara undir þjáfaranum komið hvar ég spila. Ég geri ekki kröfu á hvar ég spila á meðan ég fæ mínútur."

Rúrik segir að íslenska liðið sé staðráðið í því að hefna sín á Sviss annað kvöld.

„Það þarf að hefna sín og svara nokkrum gagnrýnisröddum. Við förum inn í þennan leik alveg eins og við förum inn í alla leiki. Við erum með háleit markmið og höfum náð að standa undir þeim markmiðum í langan tíma, fyrir utan síðustu tvo skelli."

„Það er alveg eðlilegt að jafnvægið fer aðeins þegar nýjir þjálfarar koma. Ég hef mjög góða tilfinningu fyrir framhaldinu og mér finnst vera stígandi í þessu."

Viðtalið við Rúrik má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner