Diego Jóhannesson lék allan leikinn fyrir Real Oviedo þegar liðið tapaði á svekkjandi háttt gegn Rayo Majadhonda á útivelli í spænsku B-deildinni í dag.
Leikurinn endaði með 1-0 sigri heimamanna en sigurmarkið kom stuttu fyrir leikslok, nánar tiltekið í uppbótartímanum.
Diego hefur byrjað alla leiki Oviedo í deildarkeppni á tímabilinu og er greinilega að spila stórt hlutverk..
Real Oviedo er í 12. sæti spænsku B-deildarinnar með níu stig að 12 leikjum loknum.
Diego á íslenskan föður en hann hefur leikið þrjá A-landsleiki fyrir íslenska landsliðið. Hann hefur ekki spilað fyrir landsliðið síðan í nóvember á síðasta ári, í æfingaferð í Katar.
Athugasemdir