Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. október 2018 13:30
Arnar Helgi Magnússon
Van Dijk meiddur og spilar ekki á þriðjudag
Mynd: Getty Images
Virgil Van Dijk leikmaður Liverpool og hollenska landsliðsins hefur nú dregið sig úr landsliðshópi Hollands sem leikur æfingaleik gegn Belgum á þriðjudag.

Hollenska knattspyrnusambandið gaf það út núna í morgun að Dijk sé ennþá að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir gegn Southampton þann 22. september.

Um er að ræða meiðsli í rifbeinum sem Dijk finnur ennþá fyrir og engin áhætta tekin með því að láta hann spila æfingaleik.

Dijk skoraði fyrsta mark Hollands í gær þegar þeir tóku á móti Þjóðverjum. Lokatölur 3-0 Hollandi í vil.

Salah hefur einnig dregið sig úr leikmannahópi Egyptalands vegna meiðsla en næsti leikur Liverpool er gegn Huddersfield þann 20. október næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner