Ída Marín Hermannsdóttir, leikmaður Fylkis, er á leið til Íslandsmeistara Vals samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net.
Hin 17 ára gamla Ída verður samningslaus á miðvikudag og þá getur hún gengið í raðir Vals.
Hin 17 ára gamla Ída verður samningslaus á miðvikudag og þá getur hún gengið í raðir Vals.
Ída hefur verið í lykilhlutverki hjá Fylki en hún spilaði alla átján leiki liðsins í Pepsi Max-deildinni í sumar og skoraði sjö mörk.
Þá hefur hún einnig skorað átta mörk í 22 leikjum með yngri landsliðum Íslands.
Ída er í U19 ára landsliði Íslands sem komst í milliriðla fyrir EM á dögunum.
Foreldrar hennar eru Ragna Lóa Stefánsdóttir og Hermann Hreiðarsson en þau léku bæði fjölmarga landsleiki á ferli sínum.
Athugasemdir