Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. október 2021 19:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fekir: Klopp sagðist elska mig
Mynd: Getty Images
Nabil Fekir var mikið í fréttum sumarið 2018 er hann var við það að ganga til liðs við Liverpool fyrir 53 milljónir punda.

Fréttir hermdu að hann hafi fallið á læknisskoðun en hann opnaði sig í síðasta mánuði og sagði að þetta hafi allt verið umboðsmanninum sínum að kenna.

Hann var í viðtali í gær þar sem hann sagði frá samskiptum sínum við Klopp árið 2018.

„Þetta var að fara gerast, ég fór í gegnum öll viðtöl, talaði við Jurgen Klopp, hann sagðist elska mig. Ég var við það að skrifa undir en það voru vandamál með fulltrúan minn og viðræðurnar fóru í strand," sagði Fekir.

Fekir gekk síðan til liðs við Real Betis frá Lyon árið 2019 þar sem hann hefur leikið 81 leik og skorað 14 mörk.
Athugasemdir
banner
banner