Fotbolti.net
14.10.22 - 09:51
Elvar Geir Magnússon

Klopp: Erum að fara að glíma við besta sóknarmann heims

Erling Haaland.

Erling Haaland.

Canon

Mynd: EPA

„Þegar þú spilar gegn besta sóknarmanni heims í dag þá verður þú að sjá til þess að hann fái ekki boltann," segir Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Hann lýsir Erling Haaland sem besta sóknarmanni heims en á sunnudag tekur Liverpool á móti Englandsmeisturum Manchester City á Old Trafford.

“When you play against currently the best striker in the world you have to make sure he doesn’t get the ball.
„Við munum auðvitað reyna að loka á Haaland en vandamálið er að þá gætu opnast leiðir fyrir aðra heimsklassa leikmenn sem City er með. Við verðum að reyna að finna lausnir en þetta er stærsta áskorun fótboltans."

Á fréttamannafundi í morgun þá lýsti Klopp einnig yfir áhyggjum sínum af því að Liverpool fær oft fyrsta markið á sig í leikjum.

„Það er áhyggjuefni að andstæðingurinn skorar oft fyrsta markið. Við spiluðum mjög vel í upphafi leiks gegn Rangers en svo töpuðum við boltanum þar sem við vorum ekki nægilega þéttir. Svona gerist," segir Klopp.
Klopp: Erum að fara að glíma við besta sóknarmann heims
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.