Fotbolti.net
14.10.22 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Pep segir að Liverpool sé helsti keppinautur Man City um titilinn

Jurgen Klopp og Pep Guardiola.

Jurgen Klopp og Pep Guardiola.

Canon

Mynd: Getty Images

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, telur að Liverpool sé enn helsti keppinautur liðsins um enska meistaratitilinn. Liverpool er í tíunda sæti, þrettán stigum á eftir City sem er í öðru sæti.

Arsenal er á toppi deildarinnar og Tottenham er í þriðja sæti, þremur stigum á eftir City.
Guardiola sagði hinsvegar á fréttamannafundi í dag að Liverpool væri ekki búið að missa af lestinni og sé enn helsti keppinauturinn um titilinn en liðin eigast við á sunnudag.

„Ef það væru tíu leikir eftir þá myndi ég sagja að ég teldi að Liverpool gæti ekki náð efsta sætinu. En á þessum tímapunkti getur allt gerst. Ég þekki vel gæðin sem Liverpool býr yfir, það hefur alltaf verið erfitt að spila gegn þeim og ég býst ekki við neinu öðru á sunnudaginn," segir Guardiola.

City hefur orðið Englandsmeistari fjórum sinnum á síðustu fimm árum en Liverpool skákaði þeim 2019-2020.

„Fyrir nokkrum mánuðum var Liverpool að keppast um að ná fjórum titlum. Þeir voru betri í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en töpuðu. Þetta er sama lið með sama stjóra. Við búum okkur alltaf undir að mæta bestu útgáfunni af mótherjum okkar."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal6+515
3Brighton6+1111
4Brentford6+610
5Chelsea6010
6Leeds6+39
7Liverpool5+39
8Everton5+39
9Hull City5+28
10Newcastle508
11Ipswich Town6-47
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland6-45
15Aston Villa6-55
16Crystal Palace5-54
17Fulham6-33
18Bournemouth6-43
19Coventry5-93
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.