Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 14. nóvember 2018 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Andri Jónasson á förum frá ÍR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Jónasson staðfesti í samtali við Fótbolta.net að hann sé á förum frá ÍR á næstunni.

Andri hefur komist að samkomulagi um að losna undan samningi hjá ÍR en hann stefnir á að leika í Inkasso-deildinni næsta sumar. ÍR féll úr Inkasso með tapi í lokaumferðinni í haust.

Andri er 24 ára og hefur ýmist spilað sem hægri bakvörður hjá ÍR eða hægri kantur. Í sumar skoraði Andri þrjú mörk í sautján leikjum en í fyrra var hann með fjögur mörk í 21 leik.

Andri er uppalinn hjá FH en hann hefur einnig leikið með Fjarðabyggð á ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner