Lukka Arons Jóhannssonar virðist ekki ætla að skána en hann verður frá í þrjá mánuði til viðbótar eftir aðgerð á vinstri ökkla.
Aron fór í aðgerðina í morgun og ljóst að hann verður ekki klár í slaginn fyrr en í febrúar á næsta ári.
Aron, sem spilar fyrir Werder Bremen í þýska boltanum, hefur lengi glímt við ýmis meiðslavandamál og er búinn að vera frá allt tímabilið.
Aron hefur verið á mála hjá Werder síðan 2015 en hefur spilað innan við 30 leiki vegna meiðsla.
Athugasemdir