Meiðslalisti íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Belgum er ótrúlega langur en alls eru tíu leikmenn fjarverandi. Belgar verða einnig án fastamanna í leiknum annað kvöld þó að meiðslalisti þeirra sé ekki jafn langur.
Kevin De Bruyne miðjumaður Manchester City og Jan Vertonghen varnarmaður Tottenham eru báðir meiddir en þeir eru fastamenn í byrjunarliði Belga.
Thomas Vermaelen tók stöðu Vertonghen gegn Sviss í síðasta mánuði en nú er Vermaelen einnig frá keppni. Því kemur nýr maður inn í vörnina á morgun.
Marouane Fellaini miðjumaður Manchester United og Mousa Dembele miðjumaður Tottenham eru einnig fjarverandi vegna meiðsla.
Þá er óvist hvort að Romelu Lukaku framherji Manchester United verði með á morgun en hann hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur.
Smelltu hér til að sjá belgíska hópinn
Athugasemdir