Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. nóvember 2018 16:01
Ívan Guðjón Baldursson
U19: Guðjohnsen og Willumsson tryggðu mikilvægan sigur
Úr leiknum í Tyrklandi.
Úr leiknum í Tyrklandi.
Mynd: .
Tyrkland U19 1 - 2 Ísland U19
0-1 Brynjólfur Darri Willumsson ('39)
0-2 Andri Lucas Guðjohnsen ('83)
1-2 Y. Akgun ('93)

Strákarnir okkar í U19 landsliðinu höfðu betur gegn Tyrkjum í undanriðli fyrir EM 2019.

Brynjólfur Darri Willumsson kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik og innsiglaði Andri Lucas Guðjohnsen sigurinn undir lok leiks. Brynjólfur er sonur Willums Þórs Þórssonar og er Andri sonur EIðs Smára Guðjohnsen.

Akgun minnkaði muninn fyrir Tyrki í uppbótartíma en markið hans kom of seint og komust heimamenn ekki nær.

Ísland er í riðli ásamt Moldavíu og Englandi, en Englendingar fóru létt með Moldavíu í dag og unnu 4-0. Ryan Sessegnon, vinstri bakvörður Fulham, skoraði síðasta mark leiksins.

Tvær þjóðir fara upp úr riðlinum og áfram í næsta stig undankeppninnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner