Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   fim 14. nóvember 2019 19:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi: Það er alltaf gott að vera vitur eftir á
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum mjög nálægt því í lokin," sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir markalaust jafntefli gegn Tyrklandi í undankeppni EM 2020 í Istanbúl.

Úrslitin þýða það að Ísland á ekki lengur möguleika á að fara beint úr riðlinum og á EM, liðið þarf að fara í umspil.

Lestu um leikinn: Tyrkland 0 -  0 Ísland

„Leikplanið gekk upp, við ætluðum að halda þeim á núllinu og setja pressu á þá undir lokin. Því miður gekk þetta ekki upp."

„Þegar við tökum sénsinn og förum fram þá opnast þetta gríðarlega. Ef við gerum það of snemma þá geta þeir klárað leikinn. Það er alltaf gott að vera vitur eftir á."

Nú eru allar líkur á því að Ísland fari í umspil, en Gylfi leggur mikla áherslu á því að Ísland leiki á heimavelli í umspilinu.

„Það er mikilvægt að við fáum heimaleik í fyrsta leik. Það verður áhugasamt að spila á Íslandi í mars, við sjáum til hvernig völlurinn verður. Við erum mjög sterkir heima og það er gríðarlega mikilvægt að fá heimaleik."

Viðtalið við Gylfa er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner