Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 14. nóvember 2022 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo: Eigendunum er alveg sama um félagið
Avram og Joel Glazer
Avram og Joel Glazer
Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo leikmaður Manchester United segir í löngu viðtali við Piers Morgan að Glazer fjölskyldan sem á félagið sé alveg sama um það.


„Þeir fá peninga með því að markaðsetja félagið, þeim er alveg sama um fótboltalegu hliðina að mínu mati," sagði Ronaldo.

Stuðningsmenn félagsins hafa margoft látið óánægju sína í ljós gagnvart eigendum liðsins. Ronaldo segir að þeir eigi rétt á því.

„Stuðningsmennirnir hafa alltaf rétt fyrir sér, þeir eiga skilið að vita sannleikann. Þeir verða að vita að leikmennirnir vilja það besta fyrir félagið, ég vil það besta, þess vegna vildi ég koma, þess vegna elska ég þetta félag,"

„Það eru hlutir innan félagsins sem stoppa Manchester United að komast á hæsta stig eins og Man City, Liverpool og nú Arsenal. Það verður erfitt fyrir United að berjast á toppnum næstu 2-3 ár."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner