Barcelona vill fá Kane - Wharton efstur á lista Chelsea - Endrick lánaður til Lyon
   fös 14. nóvember 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bayern og Dortmund á eftir efnilegum Belga
Mynd: EPA
Bayern er að skoða möguleika á að fá Nathan De Cat frá belgíska félaginu Anderlecht.

De Cat er 17 ára miðjumaður og er gríðarlegt efni. Hann er eftirsóttur af mörgum stórliðum samkvæmt því sem Sky Sports í Þýskalandi greinir frá.

HM U17 er í fullum gangi í Katar um þessar mundir en De Cat hefur ekkert spilað þar sem framtíð hans er í óvissu.

Dortmund hefur einnig áhuga á þessum efnilega leikmanni.
Athugasemdir
banner
banner
banner