Búið er að selja samtals 1750 ársmiða á leiki Íslands í undankeppni EM á næsta ári.
1000 miðar fóru í sölu á þriðjudaginn og þeir seldust upp á tveimur tímum.
1000 miðar fóru í sölu á þriðjudaginn og þeir seldust upp á tveimur tímum.
Í hádeginu í gær fóru 750 ársmiðar til viðbótar í sölu og þeir eru nú uppseldir einnig.
Ekki munu fleiri ársmiðar fara í sölu.
Heimaleikir Íslands
Laugardagur 8. júní Ísland - Albanía (13:00)
Þriðjudagur 11. júní Ísland - Tyrkland (18:45)
Laugardagur 7. september Ísland - Moldavía (16:00)
Föstudagur 11. október Ísland - Frakkland (18:45)
Mánudagur 14. október Ísland - Andorra (18:45)
Athugasemdir