Rafael Benítez, stjóri Newcastle, hefur verið valinn stjóri nóvember mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.
Eftir erfiða byrjun á tímabilinu náði Benítez að koma Newcastle af fallsvæðinu með þremur sigrum í jafnmörgum leikjum í nóvember.
Benítez stýrði Newcastle þá til sigurs gegn Watford, Bournemouth og Burnley.
Heung-Min Son var verðlaunaður fyrir mark nóvember mánaðar en það kom í 3-1 sigrinum á Chelsea.
Son átti þá magnaðan sprett þar sem hann fór illa með varnarmenn Chelsea.
Sjá einnig:
Sterling valinn leikmaður mánaðarins
Athugasemdir