Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segir að hans lið sé að glíma við fullt af meiðslum fyrir heimsóknina til Liverpool á sunnudag.
Mourinho vildi ekki fara nánar út í meiðslastöðuna á fréttamannafundi í dag.
Mourinho vildi ekki fara nánar út í meiðslastöðuna á fréttamannafundi í dag.
„Ég get sagt ykkur það að gegn Valencia voru það bara David de Gea og Nemanja Matic sem voru klárir í að spila en ferðuðust ekki í leikinn," segir Mourinho.
„Þess utan voru þeir leikmenn sem ekki komu með ekki klárir til að spila. Allir voru með meiðsli. Það æfðu ekki allir í gærir og margt skýrist á æfingu á eftir."
„Ég vonast til þess að einhverjir verði klárir en það er ljóst að einhverjir verða það ekki."
Athugasemdir