Jamie Carragher og Gary Neville eru goðsagnir eftir glæsilega ferla sína með Liverpool og Manchester United í enska boltanum.
Í dag eru þeir góðir félagar og stór partur af öflugu sérfræðingateymi Sky Sports.
Carragher var að tala um mikilvægi Peter Schmeichel fyrir Man Utd og rifjaði upp samtal við Neville í því samhengi.
„Gary Neville sagði einu sinni við mig að hann teldi sig aðeins hafa spilað með tveimur leikmönnum sem voru svo sannarlega í heimsklassa á tíma sínum hjá Manchester United," sagði Carragher við Telegraph.
„Annar þeirra er Cristiano Ronaldo. Hinn er Peter Schmeichel. Hann var ótrúlega mikilvægur og lék algjört lykilhlutverk fyrir félagið."
Á tíma sínum hjá Man Utd spilaði Neville með leikmönnum á borð við David Beckham, Ruud van Nistelrooy, Eric Cantona og Paul Scholes, til að nefna nokkra.
Athugasemdir