Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 14. desember 2018 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Ronaldo vill fá undrabarn Real til Valladolid
Mynd: Getty Images
Brasilíska goðsögnin Ronaldo keypti meiri hlutann í spænska félaginu Real Valladolid núna í haust.

Valladolid situr sem stendur í 12. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar og er Ronaldo farinn að leita leiða til þess að styrkja liðið.

Ronaldo hefur nú sett sig í samband við Florentino Perez, forseta Real Madrid en hann vill fá brasilíska undrabarnið Vinicius Junior til félagsins.

„Ég er búinn að tala við Perez og spurt út í Vinicius. Það gæti orðið erfitt að fá þetta í gegn. Þetta kostar mikla peninga sem að við höfum ekki eins og staðan er núna. En að sjálfsögðu reynum við að leita leiða."

Vinicius hefur fengið takmörkuð tækifæri með Real Madrid á tímabilinu en hann hefur spilað átta leiki og komið inná sem varamaður í flestum þeirra.

Athugasemdir
banner
banner
banner