Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 14. desember 2018 09:00
Arnar Helgi Magnússon
Sampaoli er tekinn við Santos
Sampaoli er vel flúraður.
Sampaoli er vel flúraður.
Mynd: Getty Images
Jorge Sampaoli er tekinn við brasilíska liðinu Santos en þetta tilkynnti félagið í gær.

Sampaoli hefur verið atvinnulaus síðan að hann var rekinn frá argentíska knattspyrnusambandinu eftir Heimsmeistaramótið í sumar.

Sampaoli fékk stjórastarf argentíska landsliðsins eftir að hafa byggt upp gott orðspor sem þjálfari Universidad de Chile, landsliðs Chile og ásamt því að hafa þjálfað Sevilla.

Argentíska liðið var slegið út í 16-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í sumar en mótið þótti vonbrigði í heild sinni fyrir liðið.

Santos endaði í 10. sæti brasilísku deildarinnar en nýtt tímabil þar í landi hefst í janúar.



Athugasemdir
banner
banner