Fotbolti.net
14.12.22 - 10:21
Elvar Geir Magnússon

Dáði Messi sem barn og er núna að spila með honum á HM

Julian Alvarez og Lionel Messi.

Julian Alvarez og Lionel Messi.

Canon

Mynd: EPA

Draumar geta svo sannarlega ræst. Hinn 22 ára Julian Alvarez fór á kostum ásamt goðsögninni Lionel Messi, 35 ára, þegar Argentína vann 3-0 sigur gegn Króatíu í undanúrslitum HM í Katar.

Þessi mynd hér að neðan var tekin fyrir áratug síðan en þá fékk Alvarez mynd af sér með hetjunni sinni. Í gær lagði Messi upp annað af tveimur mörkum sem Alvarez skoraði á stærsta sviðinu. Hitt markið skoraði Messi úr vítaspyrnu sem Alvarez fékk.


22 ára og 316 daga gamall varð Alvarez yngsti leikmaðurinn til að skora tvennu í undanúrslitum eða úrslitum í 64 ár. Árið 1958 skoraði 17 ára gamall Pele þrennu í 5-2 sigri gegn Frakklandi í undanúrslitum, fimm dögum síðar skoraði hann tvö í úrslitaleiknum. Aftur vann Brasilía 5-2, núna gegn heimamönnum í Svíþjóð.

Alvarez er núna kominn með fjögur mörk á HM og hann var einn besti leikmaður vallarins í gær.

Fyrr á árinu gekk þessi spennandi leikmaður í raðir Manchester City. Hann er kominn með fimm mörk á tímabilinu fyrir City en hefur skiljanlega aðeins verið í skugganum af Erling Haaland. En það er ljóst að kastljósið mun beinast í auknum mæli í áttina að Alvarez seinni hluta tímabilsins.

Alvarez í leiknum gegn Króötum.

Alvarez í leiknum gegn Króötum.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.