Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 14. desember 2022 00:05
Brynjar Ingi Erluson
Dalic ósáttur við vítaspyrnudóminn: Þetta var rosalega grunsamlegt
Mynd: EPA
Zlatko Dalic, þjálfari Króatíu, fannst vítaspyrnan sem Argentína fékk í leik liðanna í undanúrslitum heimsmeistaramótsins fremur grunsamleg.

Dominik Livakovic, markvörður Króatíu, fór harkalega í Julian Alvarez inn í teig, en Alvarez hafði lyft boltanum yfir Livakovic áður en hann var tekinn niður.

Daniele Orsato, dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu og var handviss með þann dóm, en Dalic var þó ekki sannfærður.

Króatar mótmæltu þessu harðlega og fékk Mateo Kovacic að líta gula spjaldið og þá var Mario Mandzukic, aðstoðarþjálfari Króata, rekinn upp í stúku.

„Fyrsta markið er mjög grunsamlegt ef ég á að vera hreinskilinn. Fyrst kom þetta atvik með hornið. Við áttum greinilega að fá horn, svona samkvæmt viðbrögðum leikmanna og svo kom þetta með vítið. Þetta var svolítið ódýrt og auðvelt,“ sagði Dalic.
Athugasemdir
banner
banner
banner