Enski kantmaðurinn Jadon Sancho kom ekkert við sögu í síðustu leikjum Manchester United á tímabilinu áður en leikmenn héldu á HM í Katar, en Erik ten Hag, stjóri félagsins, útskýrði fjarveru hans í gær.
United hefur síðustu daga verið í æfingabúðum á Spáni en Sancho var ekki í leikmannahópnum sem fór þangað.
Hann var í staðinn sendur til Hollands þar sem hann er í sérstakri einstaklingsþjálfun.
Ten Hag segir að tölfræðin sýnir að frammistaða Sancho í síðustu leikjum hans hafi ekki verið neitt í líkingu við þá frammistöðu sem hann var að skila í byrjun tímabilsins.
„Við sáum hann ekki í síðustu leikjunum fyrir United því líkamlegt ástand hans var ekki í lagi og núna er hann í sérstakri einstaklingsþjálfun.Við viljum að hann klári það og vonandi sjáum við hann svo bráðlega. Við viljum fá hann til baka eins fljótt og auðið er en ég get ekki dæmt um hvenær það verður.“
„Þegar deildin byrjaði þá spilaði hann nokkra góða leiki en eftir það missti hann aðeins dampinn. Stundum veit maður ekki hvað er að valda því. Oftast gerist þetta hægt og fyrst þarf að fylgjast með því en tölfræðin staðfestir þetta. Í byrjun tímabilsins var hann með mörk og stoðsendingar en lykil augnablikum og aðgerðum fækkaði. Ástæðan er samblanda af líkamlegu og andlegu ástandi. Við erum að rannsaka þetta og munum fá hann aftur,“ sagði Ten Hag um Sancho.
Athugasemdir




