Brasilíska vonarstjarnan Endrick ákvað að eyða tísti sem hann setti út í gærkvöldi. Tístið sneri að frammistöðu Lionel Messi gegn Króatíu á HM í Katar.
Endrick hrósaði Messi, einum besta fótboltamanni sögunnar, og sagði hann fáránlega góðan.
Brasilíumaðurinn er að ganga frá samningi við stórveldið Real Madrid en það er gríðarlega mikill rígur á milli Real og Barcelona. Messi er goðsögn hjá Börsungum og það var því ekki tekið vel í þetta tíst hjá stuðningsmönnum Real Madrid.
Endrick, sem er 16 ára gamall, fékk mikið af ljótum skilaboðum frá stuðningsmönnum Madrídinga og ákvað því að eyða tístinu sem hann hafði sett út.
Endrick er búinn að gera samkomulag við Real en hann verður ekki leikmaður félagsins fyrr en í júlí 2024. Reglur í Brasilíu heimila ekki fótboltamönnum að fara í erlent félag fyrr en þeir hafa náð 18 ára aldri. Spænska félagið borgar allt að 72 milljónir evra fyrir Endrick en vonast er til þess að það verði gengið frá skiptunum í þessum mánuði.
Endrick deleted his Lionel Messi tweet.
— ???????????????????????????? (@ChaaliiyKay) December 13, 2022
He forgot that he signed for Real Madrid ???????????? pic.twitter.com/10efpJUZOK
Athugasemdir




