Fotbolti.net
14.12.22 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Enginn komið að fleiri mörkum í sögu HM

Lionel Messi

Lionel Messi

Canon

Mynd: Getty Images

Lionel Messi skrifaði sig í sögubækurnar í enn eitt skiptið í gær. Hann skoraði fyrsta mark Argentínu í 3-0 sigrinum gegn Króatíu og hjálpaði liðinu að komast í úrslitaleikinn í fyrsta sinn síðan 2014.

Messi hefur skorað ellefu mörk í lokakeppni HM og sló með því met Gabriel Omar Batistuta sem skoraði tíu mörk á HM á sínum ferli. Markið var hans fimmta mark í Katar og er hann með jafnmörg mörk og Kylian Mbappe sem mætir Marokkó í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld.

Messi þarf að skora fimm mörk í úrslitaleiknum til að jafna markafjölda Miroslav Klose sem skoraði sextán mörk í fjórum lokakeppnum.
Messi átti þá stoðsendinguna í þriðja markinu sem Julian Alvarez skoraði í seinni hálfleik. Það var í tuttugusta sinn í sögu HM sem Lionel Messi kemur með beinum hætti að marki (mörk og stoðsendingar) á HM. Ellefu mörk skoruð og níu mörk lögð upp. Stoðsendingin var hans þriðja á þessu móti.

Tuttugu mörk sem Messi hefur komið að með beinum hætti, það slær við þeim Ronaldo Nazario, Miroslav Klose og Gert Müller sem komu allir að nítján mörkum á sínum ferli.

Antoine Griezmann, Bruno Fernandes og Harry Kane eru einnig með þrjár stoðsendingar í mótinu. Alls hefur Messi búið til átján færi fyrir liðsfélaga sína á mótinu, sem er það mesta hjá einum leikmanni, og þá hefur hann átt 27 skottilraunir sem er meira en nokkur annar.

Messi mun þó ekki jafna met Cristiano Ronaldo sem skoraði á fimm heimsmeistaramótum, Messi hefur skorað á fjórum og gaf það út í gær að úrslitaleikurinn á sunnudag yrði hans síðast leikur á HM á ferlinum.
Miroslav Klose

Miroslav Klose

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.