Franski miðjumaðurinn Yohan Cabaye er samningslaus eftir að Al-Nasr leysti hann undan samningi sínum á sunnudaginn.
Cabaye varð 33 ára gamall í gær, mánudag, en hann á glæsilegan atvinnumannaferil að baki.
Cabaye hefur leikið fyrir Lille, Newcastle, PSG og Crystal Palace á ferlinum auk þess að eiga 48 landsleiki að baki fyrir Frakkland.
Líklegast er að Cabaye haldi heim til Frakklands þar sem uppeldisfélag hans Lille verður að teljast líklegasti áfangastaðurinn.
Athugasemdir